Ernir Freyr Gunnlaugsson
Skemmtilegt stöff
30.12.2008 20:14:05 / ernir87

Gleðilegt ár

Komiði sæl

Nú er ég kominn heim og er búinn að vera í rúma viku. Ferðalagið heim gekk vonum framar. Við lenntum ekki í neinum seinkunum og höfðum nægan tíma á Kastrup til að hygge okkur. Núna er maður bara búinn að liggja í leti síðan maður kom heim og ég hef ekki einu sinni nennt að fara að vinna. Ég fékk góðar gjafir í jólagjöf og sérstaklega má nefna að hún Tinna mín gaf mér skólatösku sem hún saumaði alveg sjálf og þráðlausa mús. Annars vil þakka öllum sem gáfu mér pakka.

Ég var að lesa annál ársins hjá Magna og mér fannst það voðalega skemmtilegt. Þess vegna ætla ég að stikla á stóru hérna með það sem ég man eftir, en þetta verður engan vegin jafn ýtarlegt og hjá Magna. Ef ég man ekki eftir einhverju vil ég endilega benda fólki á að benda mér á það.

·         Ég fór í sveinspróf og stóðst það.

·         Hún Tinna mín varð tvítug og útskrifaðist úr VMA. Ég var fárveikur í útskriftinni.

·         Harpa og Simmi eignuðust tvö yndisleg börn sem fengu nöfnin Bergur Magnús og Katrín Karlinna.

·         Ég gerðist Dani og byrjaði í háskólanum í Álaborg.

·         Sandra systir Tinnu og Bolli eignuðust stúlku sem hlaut nafnið Birgitta Rut núna á milli jóla og nýárs.

·         Peningamálin fóru til #!“$%&/ þegar kreppan skall á.

Ég fer til Reykjavíkur þann 8.janúar og út aftur 9.jan um morguninn. Þá fer ég að undirbúa mig á fullu fyrir próf sem ég fer í þann 21.jan í eðlisfræði. Þann dag kemur Hafdís til okkar og ætlar að vera í viku að chilla hjá okkur.

Annars vil ég bara óska öllum gleðilegs árs og vil þakka kærlega fyrir allt gott á árinu sem er að líða.

Ernir Freyr Gunnlaugsson


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.12.2008 09:55:27 / ernir87

Styttist í heimferð

Jæja það er orðinn smá tími síðan ég setti hérna inn nokkur orð.

Frá því síðast þá hefur ekkert ofsalega mikið gerst. Jú þessi julefrokost hjá okkur strákunum fór alveg ágætlega, ég varð náttúrulega alveg nokkuð vel kendur og aðrir líka. Ég var alveg búinn klukkan 10 um kvöldið svo þá fór ég bara heim. Nú hugsa væntanlega margir, hvaða djöfulsins aumingjaskapur er þetta. En já við vorum búnir að vera á fylleríi frá því klukkan 8 um morguninn þannig að ég mundi segja að þetta væri bara nokkuð góður árangur. En síðan hef ég heldur ekki fengið mér sopa.

Ég er búinn að fá tímabundna vinnu hérna úti, við það að vaska upp á frekar fínu hóteli í miðbænum. Diddi útvegaði þessa vinnu fyrir mig og ég er búinn að fara tvisvar. Ég er líka að fara að vinna í kvöld og annað kvöld. Ég veit ekkert hvað ég er að fá í kaup, en svo lengi sem ég fæ borgað fyrir þetta þá er ég sáttur. Allur peningur kemur að góðum notum.

Núna er allsvakalega farið að styttast í heimferð. Ég er orðinn dálítið mikið spenntur fyrir því að koma heim. Flugið verður á fimmtudaginn klukkan 20:30 frá kastrup, sem þýðir að ég á að fljúga héðan klukkan 17:30 og þarf svo að hlaupa á kastrup til að ná fluginu heim. Vonum bara að fluginu héðan seinki ekkert. Já ég ætla að fljúga með Iceland Express þó að ég hafi lennt í því í vor að fluginu seinkaði um 8 og hálfan tíma. Það var bara talsvert ódýrara fyrir okkur að fljúga með þeim heldur en Icelandair, og við erum jú fátækir námsmenn. En þetta þýðir að ég verð kominn til Keflavíkur um klukkan 11 á fimmtudagskvöldið. Svo flýg ég austur á föstudaginn rétt eftir hádegið.

Ernir ÚT


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.11.2008 20:26:26 / ernir87

Íbúðin í hús

Hérna kemur smá framhald af síðustu færslu.

Ég er semsagt búinn að fá leigusamning í hús og hann er farinn aftur frá mér, undirskrifaður. Þetta þýðir á mannamáli að ég er búinn að fá íbúðina. Eina sem á eftir að gera núna er að borga inn á íbúðina svo ég sé búinn að festa mér hana fullkomlega. Ég þarf reyndar að borga rúmlega 8000DKK og það var smá stress að láta millifæra það frá Íslandi inn á reikninginn minn hérna í DK. Núna bíð ég bara eftir að fá péninginn inn á reikninginn svo ég geti eytt honum strax aftur.

Annars er julefrokost hjá okkur strákunum í grúppunni á morgun frá klukkan 08:00. Ég á ekkert að vera í skólanum en ætla samt að mæta svona snemma. Við erum tveir af 9 sem eigum ekkert að vera í skólanum en hinir eiga að vera í tíma til klukkan 12. Við verðum bara eitthvað að dunda okkur þarna á meðan hinir reikna stærðfræði. Það er dresskode svo ég þurfti að fara að versla mér einhverjar druslur.
Ég fór að leita mér að einhverjum jakka og allir jakkarnir sem í boði voru, voru á 700-3000DKK. Í einni búðinni lét ég kaupmanninn vita af því að jakkinn sem ég var að skoða væri svolítið dýr þó hann væri búinn að bjóða mér hann á 800 frá því að vera í 1500. Þá snýr hann sér við og segir að hann sé með jakkaföt á 600 og það væri eiginlega bara ódýrara að kaupa jakka með buxum heldur en bara jakkann, svo ég keypti það bara þó buxurnar væru aðeins tæpar (Tinna lagar það bara fyrir mig).

Núna er farið að styttast í að ég fari heim á klakann. Ég á flug heim þann 18.des svo það er innan við mánuður. Ég er óneitanlega farinn að hlakka svolítið til. Ég hef samt ekki nema 3 vikur heima á Íslandi og þá hefst stríðið aftur með viku í skóla og svo próf. Það getur ekki annað en reddast.

En jæja nú er ég hættur í bili. heyrumst.

Ernir ÚT

P.S. Mig langar alveg að heyra í fólkinu sem les þetta.



» 2 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 16:16:50 / ernir87

Gleðifréttir

Hæbb

>

Ætli maður fari ekki að gera eins og manni er sagt, það er alltaf verið að biðja mig um að blogga og hér er smá blogg.

>

Ég ætla að byrja á því að segja ykkur frá nýjustu og eiginlega gleðilegustu fréttunum í mínu lífi núna. Ég var að fá tilboð um nýja íbúð hérna í Álaborg. Þessi íbúð er á sama svæði og íbúðin sem Birnir er í. Íbúðin er tveggja herbergja með eldhúsi og baði. Það er bakarofn í íbúðinni sem maður er búinn að dreyma um. Annars er eiginlega allt innifalið í verðinu nema rafmagn og verðið er bara 2600DKK á mánuði. Til viðmiðunnar er ég að borga um 2000DKK á mánuði hérna. Þessi íbúð er eiginlega búin að vera efst á óskalistanum hjá okkur Tinnu síðan við fórum að leita okkur að stærri íbúð. Ég get alveg sagt það án þess að ljúga að ég brosti allann hringinn þegar ég fékk þetta bréf. Núna er þetta bara farið í ferli hjá íbúðafélaginu og vonandi kemur nýr leigusamningur fljótlega í póstkassann hjá mér. Ég hringdi áðan í fólkið sem er að flytja út og spurði hvort ég gæti fengið að skoða íbúðina og það gerist eftir nákvæmlega viku. Ég er samt búinn að segja já við þessari íbúð án þess að sjá hana en það skiptir engu, ég kvarta þá bara ef það er eitthvað að.

>

Frá því síðast þá hefur samt ýmislegt gerst. Ég pantaði mér flug heim þann 18.des og út aftur 9.jan. Sterling fór á hausinn með flugmiðana mína innanlands í Danmörku en ég fékk það endurgreitt frá Vísa og ég þurfti að kaupa nýja miða með SAS. Eina sem ég tapaði á Sterling var að við Tinna áttum inni hjá þeim frítt flug hvert sem er aðra leiðina. Nýja flugið kostaði það sama á hverja ferð.

Ég fór á fredagsbar með strákunum í grúppunni fyrir rúmri viku og datt svona svakalega í það og fór svo óvænt á ball hjá Íslendingafélaginu daginn eftir og datt bara líka í það þar. En eins og þið vitið þá er ég ekkert svakalegur drykkjumaður.

>

Ég man ekki neitt endilega eftir fleiru í bili en ef það kemur eitthvað þá bæti ég því bara við, svo fylgist með.

>

Ernir ÚT


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 08:10:01 / ernir87

Kreppublogg

            Það er ekki eins og ég tali við suma eitthvað á næstum hverjum degi en ég ætla samt að setja inn eitt stutt blogg hérna.

            Vitiði, það er erfitt að vera Íslendingur í Danmörku um þessar mundir. Á tímabili var ástandið svo svart að ég í alvörunni hugsaði um það að fara bara að vinna. Þið sem þekkið mig vitið að ég gefst ekki svo auðveldlega upp að ég ákvað að þrauka.

            Ástandið í peningamálum er frekar slæmt en ég gladdist aðeins í gær þegar ég fékk að vita hvað ég ætti mikið orlof sem ég gæti tekið út þegar ég kem heim.

            Annars er bara þetta venjulega að frétta af mér. Eftir morgundaginn fæ ég 10 daga frí sem kallast Efterårsferie. Það verður fínt að geta sofið út alla dagana, nema ég fái Didda frænda til að útvega mér vinnu á hótel Phönix í miðbænum.

            Þessa dagana hef ég ekki verið að læra dönsku nema með því að lesa eitt stykki doðrant sem er kennslubókin og í henni er verið að kenna okkur um einhverja kalla sem ég skil ekkert í, eins og Platon, Sokrates og Aristoteles. Ég vissi ekki að dönskukennsla væri um gamla heimspekinga. En svona er þetta.

            Okkur Tinnu var boðið í pönnukökur og spjall til Bjarka og Kollu á sunnudaginn sem var mjög fínt. Bjarki var að prufa nýju pönnukökupönnuna sem mamma hans sendi honum (hún var samt búin að reynsluaka henni áður). Vitiði, ég er nokkuð viss um að Bjarki geti alveg spjarað sig í því að baka pönnukökur, þetta var bara alveg helv..... gott hjá honum.

>

Jæja ég held ég hafi ekki meira að segja í bili svo...


P.S. langar að sýna ykkur hvað Danir hugsa vel til okkar.
http://ekstrabladet.tv/article1067129.ece

>

Ernir ÚT


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 19:17:20 / ernir87

Kveðja frá baunum

Jæja ætli maður verði ekki að “andskotast” til að henda inn einni færslu. Magni var alveg sjóðandi þegar ég talaði við hann áðan. Hann sagði að það væru allir orðnir hudleiðir á færslunni frá því í mars.

Frá því í mars... hefur margt gerst í mínu lífi. Ég nenni nú varla samt að fara yfir það allt því þá mundi sko enginn nenna að lesa þetta. En allavega eins og staðan er núna þá er ég fluttur til Danmerkur, nánar tiltekið Álaborgar á norðurjótlandi. Ég fékk inni í háskólanum hér þar sem ég er á svokölluðum Adgangskursus sem er eins konar undirbúningur fyrir verkfræði, næstum því sama og frumgreinasvið í Háskólanum í Reykjavík. Hér er ég að læra að tala dönsku en samt ekki, ég er í raun að læra einhverskonar sögu eða eitthvað. Jú auðvitað erum við að skrifa stíla og eitthvað en seinna byrjum við að fjalla um svona gamla tíma og karla eins og Aristoteles, Sokrates og Platon. Ég er samt ekki bara að læra dönsku heldur er ég líka í eðlisfræði og þar er í raun bara verið að rifja upp það sem maður lærði í grunnskóla auk fullt af nýjum formúlum sem á ekki að vera mjög erfitt að læra. Svo eftir vetrarfríið þá byrjar kúrs sem ég ætla að fara í sem heitir einfaldlega “Danska fyrir Íslendinga”. Það verður eiginlega að koma fram í tengslum við það að bara á Adgangskursus eru 11 Íslendingar.

Ég er semsagt búinn að koma mér fyrir í íbúð hérna sem er bara allt í lagi, allavega staður sem venst. Þetta er herbergi með eldhúsi og baði. Ef ég ætlaði mér bara að vera einn hérna þá mundi þetta alveg duga mér en þar sem Tinna flytur inn til mín eftir áramót þá verðum við eiginlega að stækka við okkur. Þetta sem ég er í núna er nú ekki nema tæpir 30 fermetrar. Við erum búin að kaupa okkur rúm sem er eitt af því sem okkur fanst þurfa að vera frekar gott. Allt hitt sem vantaði lánaði Diddi, móðurbróðir minn, okkur. Diddi er búinn að vera okkur rosalega góður hérna því hann er búinn að aðstoða okkur með eiginlega allt sem skiptir máli eins og að skrá okkur inn í landið, bankareikning, símreikning og svo náttúrulega er mjög reglulega föstudagskjúklingur hjá honum sem við förum í. Við búum ekkert svakalega langt frá honum þannig að það er fínn göngutúr að skreppa til hans.

Þá er ég eiginlega búinn með innganginn að þessari færslu með því að kynna aðstæður og koma ykkur inn í það sem ég er að gera. Núna er komið að því nýjasta eða þannig. Það er eitt sem böggar mig alveg svakalega hérna og ég kemst bara eiginlega ekki yfir það. Það er að danskar verslanir eru alveg hrikalega hræddar við að það sé verið að svindla á sér. Þær taka nefnilega ekki íslenskau vísakortin mín. Jú ég er kominn með Dankard en það þýðir samt ekki að vísakortin eigi ekki að virka. Þetta er bara fáránlegt. Svo er ég að fara að kaupa mér sjónvarp og ég vissi að í vor þá gat verslunin tekið vísakort frá pabba en núna þegar ég ætla að fara að versla hjá sömu verslun, nei þá ákveður hún bara að segjast ekki taka kortið. Ég var alveg við það að snappast þegar þetta kom í ljós. Það þýddi bara að ég þurfti að millifæra pening frá Íslandi, þar sem BTW danska krónan kostaði 18,7kr, yfir á danska reikninginn minn. Núna bíð ég bara eftir því að sá peningur komi inn svo ég geti pantað helv... sjónvarpið.

Þetta er samt búið að vera dálítið erfitt að vera gaurinn sem situr í tímum og hlustar bara og segir helst ekki orð. Eins og þeir sem þekkja mig vita þá er ég ekkert mikið fyrir það að sitja og segja ekki orð en ég er ekkert að ljúga því en ég hef gert það í alvörunni. Núna eru tímarnir samt að breytast þar sem ég er farinn að tala eins og brjálæðingur í grúppunni og meira segja líka aðeins í tímum. Það er reindar einn galli við mig sem ég hef alveg fengið að kenna á núna, ég get verið mjög feiminn og reyndar líka hræddur við það að tala. Ég vil kenna því um að í skóla hafi maður ekki fengið neina æfingu í að tala heldur bara að lesa og skrifa. Ég finn alveg fyrir því að ég skil rosalega margt sem er skrifað en Danir geta verið gjörsamlega óskiljanlegir í tali.

Svo ég tali nú aðeins um hana Tinnu mína þá er hún bara uppi í Vrå þar sem hún er í lýðháskóla að læra textíl meðal annars. Þar sem hún er miklu duglegri en ég að blogga þá held ég að það væri bara best að þið læsuð um hana á blogginu hennar:d.

Jæja ætli ég fari ekki bara að segja þetta gott í bili en við skulum vona að fólk verði nógu dulgegt við að skipa mér að halda áfram að blogga.


Ernir ÚT

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 20:53:21 / ernir87

Ég held að það sleppi

Vegna fjölda áskoranna hef ég ákveðið að leggja smá orð í belg.

Margt hefur gerst síðan á síðasta bloggi enda mjög langt síðan. Í byrjun árs þá var ég settur í það að vinna á verkstæði Rafmanna vegna þess að ég átti að æfa mig fyrir komandi sveinspróf í því að útbúa rafmagnstöflur. Þar var ég alveg fram í lok janúar þegar ég var settur í það að vinna í nýju menningarhúsi Akureyringa. Á sama tíma var ég á námskeiði fyrir sveinsprófið og rifjaði maður þar upp allt sem maður þarf til að komast í gegnum sveinspróf.
Í febrúar byrjaði svo sveinsprófið eða þann 7.feb. Prófið tók 3 daga. Á fimmtudegi var rafmagnsfræði og raflagnateikning og á föstudegi var reglugerðir og mælingar. Á laugardeginum var svo verklegt próf frá 8 um morguninn til 5 síðdegis. Þetta gekk svona upp og ofan en ég var eiginlega alveg sannfærður um að þetta hefði allt gengið ágætlega bara, eða allavega nægilega vel til þess að ég myndi sennilega ná þessu. Strax eftir prófið fór ég síðan í það að kanna málin með háskólanám í haust. Ég og Eiríkur félagi minn ákváðum að kanna málin í sameiningu og ákveðið var að kanna nám í Odense en ég ákvað að halda líka opnu námi í Álaborg.
Síðan líða dagarnir án þess að nokkuð gerist nema bara vinna, éta, sofa.
Við förum í leikhús á Fló á skinni sem ég BTW mæli eindregið með. Þau Magni og Tinna héldu á tímabili að ég myndi ekki lifa þessa leikhúsferð af vegna hláturs. Við sáum alveg fyrir okkur fyrirsagnir daginn eftir "Ungur maður lést í samkomuhúsinu á Akureyri í gærkvöldi vegna þess að hafa hlegið of mikið á sýningu LA á Fló á skinni". 
Í byrjun þessa mánuðar eða 8.mars fékk ég svo loks að vita útkomuna úr sveinsprófinu og að sjálfsögðu hafði ég rétt fyrir mér, ég náði.

Núna er maður bara í sæluvímu eftir það að hafa náð prófinu og getur snúið sér að því sem maður gerir best þ.e. að liggja uppí sófa og horfa á sjónvarpið. Svo ég ljúgi engu þá hefur Tinna verulegar áhyggjur af mér, hún heldur að ég fari að deyja úr leiðindum. Ég held samt að það sé óþarfi að fara áhyggjur af mér.

Um páskana ætla ég að skella mér suður eða nánar tiltekið Selfoss og Eyrarbakka. Á Selfossi ætla ég að gerast hnakki á mínum fína skoda octavia og rúnta um bæinn með scooter í botni. Nei, nei ég ætla nú bara að fara í fermingu þar.

Eitt sem ég verð að koma að. Í febrúar var úrslitakvöld laugardagslaganna á Rúv og þar kom sá og sigraði lag Eurobandsins, Fullkomið líf eða This is my life. Ég er gallharður aðdáandi Eurobandsins og held með því alla leið til Serbíu.

Mig langar líka aðeins að fara stuttum orðum um gærkvöldið. Í gær var semsagt sjónvarpsefni sem ég hef mikinn áhuga á þ.e. Gettu betur og Bandið hans Bubba.
Í þeim fyrrnefnda þar áttust við lið MR og MA. Að sjálfsögðu hélt ég með mínu liði eða MA. Ég var uppi hjá Simma og Hörpu að horfa vegna þess að Tinna yfirgaf mig og fór til Reykjavíkur í páskafrí. Mér var hætt að lítast á blikuna þegar þau stóðu bæði yfir mér eins og ég ætti bara að yfirgefa samkunduna. Ég áttaði mig síðan á því að Harpa gat ekki setið mikið vegna óléttunnar og Simmi var of stressaður. Það kom á daginn að MR vann í bráðabana. Ég nenni ekki að skrifa allt um keppnina en þið getið lesið mest af því hjá Magna (http://carlos.blogcentral.is). Ég er á sama bandi og Magni með niðurstöðuna og Konna.
Eftir Gettu Betur var horft á Bandið hans Bubba á Stöð 2+. Þar hlustuðum við á lögin og vorum alveg sammála Bubba í því að reka Vilhjálm heim. Vildi bara koma því á framfæri.

Jæja ætli ég láti þetta ekki bara gott heita í bili, ef einhver nennti að lesa svona langt þá þakka ég fyrir mig.

Ernir Freyr Gunnlaugsson


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 15:46:26 / ernir87

Gleðilegt nýtt ár

Komiði sæl

Núna er nýtt ár gengið í garð. Pæliði í þessu! 2008. Jæja það er ekkert við því að gera.

Mér hefur liðið alveg ljómandi yfir hátíðarnar hérna heima á Eskifirði í faðmi fjölskyldunnar. Reyndar lennti ég í því að ná mér í einhverja pest á annan í jólum og þá var bara gullfoss og geysir allan daginn. Það varð líka til þess að maginn varð tómur og er ég ekki enn búinn að vinna upp tapið.

Þessi jól voru óvenjuleg að því leiti að ég fékk óvenjulega mikið af pökkum núna. Vanalega hef ég verið að fá svona 3-4 stk en núna voru þeir 8. Svona er fínt að hafa svona tengdafólk og vini. Ég er mjög sáttur við allt sem ég fékk og vil ég nota tækifærið og þakka kærlega fyrir mig. Svo er annað sem var að bögga mig dálítið, það var að Tinna mín var á Hólmavík og ég hérna á Eskifirði og þess vegna vorum við í fjarbúð þessa daga, en að sjálfsögðu reddaðist það. Við ákváðum bara að hafa þetta svona núna og sjá svo bara til næst.

Ég ætla ekki að fara að taka saman árið 2007 eins og Magni vinur minn gerði á sinni síðu en ég ætla að stökkva yfir svona stærstu atriðin.

  • Ég var fundinn af frábærri stelpu sem heitir Tinna Rut og byrjuðum við saman í byrjun árs.
  • Ég útskrifaðist úr VMA með stúdentspróf að loknu starfsnámi.
  • Ég var að vinna hjá Raflögnum Austurlands í sumar.
  • Í september byrjaði ég að vinna hjá Rafmönnum á Akureyri og á sama tíma fór ég að búa á Akureyri í íbúð sem ég leigi.

Þetta eru ekki margir punktar en þið verðið að átta ykkur á að þetta eru bara svona stóru skrefin á árinu. Fullt af öðru merkilegu gerðist á árinu en ef ég færi að telja það allt upp væru þið endalaust að lesa.

Með þessu litla bloggi ætla ég að óska ykkur gleðilegs árs með von um að nýtt ár verði gott fyrir alla.

Ernir Freyr Gunnlaugsson 


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 20:20:21 / ernir87

Geisladiskaflóð

Mig langar aðeins að nefna hérna nokkra hluti.

Fyrir stuttu síðan kom út geisladiskur sem ég er að fíla í tætlur. Sá diskur heitir held ég "Ljóð um þig". Á þessum disk eru lög eftir Bjartmar nokkurn Guðlaugsson en í flutningi hljómsveitarinnar Nefndarinnar frá austurlandi. Úr því að ég finn ekkert um þennan disk á netinu þá ákvað ég bara að tala aðeins um þetta. Mér finnst þetta ótrúlega flott hjá Nefndinni og hvet ég alla til að verða sér út um eins og eitt eintak.

Bjartmar Guðlaugsson hefur samið fjöldan allan af lögum og textum við eins og t.d. týnda kynslóðin, sumarliði er fullur, ljóð um þig, járnkallinn, súrmjólk í hádeginu og fleiri og fleiri. Nefndin er að taka nokkur af hans bestu lögum og gerir það bara mjög vel. Nokkur laganna syngur Andri Bergmann frá Eskifirði.

Einnig langar mig til að nefna það að út er líka kominn diskur sem heitir Vestur og er með Sniglabandinu. Það er algjörlega frábær diskur. Mörg laganna eru róleg og gott er að hafa diskinn í bakgrunni eins og ég er að gera núna. Einnig eru lög eins og Selfoss er og Britney á disknum og kemst maður bara í gott skap við að hlusta á þau. Svo er lagið Ballaðan um bó ótrúlega flott.

Ég vildi bara nefna þetta.

Ernir Freyr


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 15:14:55 / ernir87

Voðalega líður þetta hratt

Núna er sunnudagurinn 11.11.07. Það eru kannski ekkert svakalegar fréttir nema vegna þess eins að það er farið að styttast óþarflega mikið í jólin. Mér þykir mjög gaman að skoða jólaskreytingar og allt það, ég er m.ö.o. frekar mikið jólabarn, en samt, maður skreytir ekki fyrr en í fyrsta lagi í seinni hluta nóvembermánaðar. Núna eru mjög margar búðir farnar að huga að jólum og ég bara næ ekki alveg upp í það. Jú okey þetta vekur athygli og sennilega eykur það líka söluna en ég veit ekki. Það var nú meira að segja í fréttunum í vikunni að maðurinn sem vinnur í JMJ er byrjaður að skreyta. Ég meina, hvað er að fólki?

Já ég er núna hættur að tala um jólin.

Að mér aftur þá er ég bara vinnandi alltaf og hef ekki einu sinni haft tíma til að fara í klippingu sem mér veitti sennilega ekkert af. Það er stíflað klósettið í íbúðinni minni og verður sennilega gert við það á morgun. Þetta er mjög erfitt að þurfa bara að halda í sér. Ég var með matarboð í gærkvöldi þar sem við buðum Magna og Steinunni í mat. Við elduðum einhverja voðalega fína helgarsteik. Mig langar að koma því á framfæri að ekki fara eftir leiðbeiningum á svoleiðis pakkningum því þær eru mjög rangar. Ég var búinn að hafa steikina inní ofninum bara eins og stóð á leiðbeiningunum en nei kjötið var hrátt í miðjunni svo ég fíraði aðeins upp í ofninum og eftir hálftíma í viðbót þá var hún mjög góð.

Tinna er voðalega mikið upptekin þessa dagana svo ég er voðalega mikið bara einn heima. Mér finnst það allt í lagi en hún vorkennir mér alltaf voðalega mikið.

Ég fer mjög sennilega bara í sveinspróf í febrúar og þá verð ég loksins kominn með einhverja viðurkenningu á starfinu mínu.

 Ernir Freyr Gunnlaugsson


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 22:00:10 / ernir87

Langar að breyta til

Mig langaði bara að breyta aðeins til og bjó mér þess vegna til nýja síðu og er slóðin þangað:

 

http://ernir.blog.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 20:19:21 / ernir87

Sept - Okt

Ætli það sé ekki best að henda hérna inn eins og nokkrum orðum.

Það er ekkert voðalega mikið samt að frétta ennþá. Jú ég er búinn að koma mér fyrir í fínu íbúðinni sem ég er að leigja í kjallaranum hjá Simma. Mér líður mjög vel hérna og ég geri líka ráð fyrir því að Tinnu líði vel hérna þar sem hún er eiginlega alltaf hjá mér nema þegar ég er ekki heima. 

Ég er búinn að komast að því að ég er alveg hættur að vera partýljón (sem ég veit ekki einu sinni hvort ég hef verið nokkurtíman) vegna þess að ég er bara alveg hættur að drekka og líka fara út á lífið. Ætli ég hafi ekki ágætis aðhald í þeim efnum svosem.

Vinnan hjá mér byrjar nú bara ágætlega ég var settur í að vinna í Pennanum sem er búinn að vera í mikilli andlitslyftingu og geri ég alveg ráð fyrir að vera þar fram að áramótum. Þannig er mál með vexti að verslunarstjórinn í Pennanum er alveg frábær. Hann kemur kannski með tvö verkefni sem þarf að vinna á mánudegi og við komumst kannski yfir að gera annað þeirra en svo á þriðjudeginum kemur hann með önnur tvö verkefni sem þýðir að á þriðjudeginum þurfum við helst að klára þrjú verkefni. Það er frábært, og þess vegna hlaðast upp verkefnin. Við tókum okkur nú til einn daginn og fórum yfir listann og strikuðum hálfan listann út á einum degi, við vorum svo duglegir þann dag, svo stoltur.  Núna á miðvikudaginn fóru svo flest allir starfsmenn Rafmanna til Ríga í lettlandi í árshátíðarferð og ég ákvað bara að vera heima. Þá var ég settur í búsetablokkina þar sem er nóg að gera.

En svo hef ég verið að heyra af því að þetta lið þarna uppá vist sé eitthvað að væla yfir því að ég komi aldrei í heimsókn. Svar mitt við því er að ég er bara vinnandi maður og hef því bara kvöldin og svo annað að maður á það alltaf á hættu þegar maður kemur upp á vist að allir séu að LÆRA þannig að ég vil frekar bara að fólkið komi til mín þegar það hefur tíma á kvöldin.

Svo auðvitað eru allir velkomnir í heimsókn til mín. Ég tek yfirleitt alltaf vel á móti fólki (fer samt náttúrulega eftir því hver á í hlut).

Ernir Freyr Gunnlaugson 


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 20:36:22 / ernir87

Vetur komandi

Mig langar bara til að koma þeim upplýsingum á framfæri að í vetur mun ég búa á Akureyri í kjallaranum hjá Simma húsbónda. Ég ætla mér að vinna hjá Rafmönnum. Ef einhvern langar að koma í heimsókn þá bara kíkiði. Ég flyt á föstudaginn næstkomandi.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 22:28:54 / ernir87

Versló

Versló var um helgina og ég skellti mér á "Eina með öllu" á Akureyri, þó að ég væri á aldrinum 18-23 ára. Ég tjaldaði samt ekki. Tinna kom norður og hitti mig þar og við gistum hjá Beggu móðoursystur minni. Birta Brá kom norður líka og fékk hún að gista líka hjá Beggu. Þetta var nú frekar róleg helgi og það er alveg hægt að segja að ég hafi ekki tekið hressilega á því, vegna þess að ég drakk svo til ekkert.

Á föstudagskvöldið fórum við bara í bæjinn og skoðuðum mannlífið og Birta fór með vinkonum sínum á eitthvað rall en við Tinna vorum bara róleg á smá rúnti og fórum svo bara heim. Á laugardaginn fórum við í heimsókn til Gunnu og Garðars og það var fínt. Gunna sagði nú að það væri greinilegt að ég mundi finna það á mér þegar væri bökuð skúffukaka í Stapasíðunni þar sem hún hafði ekki bakað skúffuköku síðan fyrir bíladaga og þá kom ég líka í heimsókn. Um kvöldið fórum við í Sjallann á Stuðmenn. Á sunnudaginn fórum við Tinna aðeins fyrr út en aðrir vegna þess að við fórum til að finna eitthvað smotterí handa Birtu í gjöf þar sem hún átti afmæli þá. Svo fórum við á Sniglabandið á Græna hattinum þar sem þeir voru í beinni útsendingu á Rás2. Það var hún hálf vandræðalegt þar sem ég ætlaði nú pottþétt að fá sæti og við vorum mætt um hálf 2 en þá var bara enginn mættur nema við tvö, vandræðalegt. En svo kom fullt af fólki og staðurinn fylltist. Um kvöldið var svo kvöldvaka á Akureyrarvelli þar sem ég skemmti mér mjög vel en ég veit ekki alveg hvort ég geti talað fyrir hönd Tinnu og Birtu en ég veit að þeim var kalt. Ég fullyrði að flugeldasýningin hafi verið sú flottasta sem ég hef á ævi minni séð. Eftir það fórum við heim til Beggu til að Birta gæti tekið sig til og svo skutluðum við henni í partý og við tinna fórum á Sniglabandið á Græna hattinum. Það var mjög gaman.

Þetta var semsagt dagbókin en hér fyrir neðan ætla ég að segja nokkur vel valin orð.

Mig langar bara að segja nokkur orð um þetta 18-23 ára dæmi. Ég er ekki sáttur við þetta þar sem með þessu er bæjarstjórn Akureyrar að setja öll ungmenni á þessum aldri undir sama hatt að vera glæpamenn. Ég vil ekki hafa það að ég sé kallaður glæpamaður. Ef ég hefði viljað tjalda þá hefði ég ekki mátt það vegna þess að ég er glæpamaður. Ég var þarna í skóla og hef kynnst fullt af fólki þarna sem ég vildi hitta en með þessu er í raun verið að banna mér það nema ég reddi mér gistingu úti í bæ eins og ég gerði. Ég held að eina ráðið við þessu sé að hafa mjög öfluga gæslu á tjaldstæðunum og ef einhverjir einstaklingar, sem eru örugglega teljandi á fingrum, eru með læti þá á bara að henda þeim af tjaldstæðunum. Mér finnst þetta vera skömm fyrir Akureyri. Það er samt gott að búa á Akureyri.

Með þessu ætla ég að enda þetta dagbókarblogg með hugleiðslu ívafi.

Ernir Freyr Gunnlaugsson


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 21:47:39 / ernir87

50 ára afmæli

Jæja á föstudaginn keyrði ég með mömmu og pabba suður á land, nánar tiltekið á Eyrarbakka. Þar býr nefnilega systir mömmu sem hélt upp á 50 ára afmælið sitt um helgina. Tinna kom suður til að vera með okkur þar og það var mjög skemmtilegt. Pabbi var búinn að búa til dvd með myndum af fjölskyldunni og ævi móðursystur minnar. Þetta var ótrúlega skemmtileg helgi bara. Við Tinna fórum til Reykjavíkur á laugardaginn og fórum í nokkrar búðir og ákváðum svo að hitta Birtu. Við mæltum okkur mót í Smáralind og settumst þar á kaffihús og spjölluðum saman. Svo í gær þá keyrðum við norðurleiðina austur og komum við á Akureyri þar sem við borðuðum og ég fékk að setja sjónvarpið, sem ég fæ að vera með, inn í íbúðina sem ég verð með í vetur. Simmi var búinn að rífa niður veggi og var að byrja að setja upp nýja í íbúðinni og ætlar að gera þetta voðalega fínt fyrir mig. Svo ef þið eigið leið um Akureyri í vetur þá er alveg hægt að kíkja í heimsókn ;)

Var ég samt nokkuð búinn að segja ykkur frá því að ég er búinn að kaupa mér bíl. Þann 1.júní keypti ég mér bíl. Hana þara er það. Nei nei, ég keypti mér eitt stykki Skoda Octavia árgerð 2004, keyrður 37þús, mjög vel farinn og fínn bíll í alla staði. Hann er hvítur. 

 Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili en vil samt minna á að ég er að fara til Akureyrar á föstudaginn ef einhvern langar að hitta mig, ef svo er þá er ég með síma.

 Ernir Freyr Gunnlaugsson


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7